Ýsa í tandoorisósu með agúrku raitu
Hráefni:
1/2 laukur
2 msk sítrónusafi
2 msk olía
2 dl ab mjólk
1 1/2 msk tandoori kryddblanda
300 g ýsuflök roð- og beinlaus
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C. Saxið laukinn smátt. Blandið öllu nema fiskinum saman í skál. Setjið örlitla olíu í eldfast mót og dreifið henni um mótið.
Raðið ýsuflökunum í mótið. Hellið tandoori sósunni yfir þannig að hún þeki allann fiskinn. Látið standa í 10 mínútur.
Bakið fiskinn í miðjum ofni í 15-18 mínútur.
Raita
Hráefni:
1/2 agúrka rifin í rifjárni
1 1/2 dl ab mjólk
1/4 tsk kummin
1/4 tsk salt
Aðferð:
Allt sett í skál og hrært saman
Gott að bera fram með agúrku raitu, naan brauði og hrísgrjónum.