14.03.2020
Góðan daginn gott fólk, það er gullfallegur dagur í dag Herjólfur siglir samkvæmt áætlun til Landeyjarhafnar í dag og biður ykkur að fara eftir þessum tilmælum:
Í ljósi þess ástands sem nú ríkir vegna Covid-19 vill Herjólfur ohf koma á framfæri:
Komi til þess að einstaklingur sem eru að koma af þeim svæðum sem skilgreind eru sem hættusvæði, einstaklingar sem hafa verið í sóttkví eða einstaklingar sem sýna flensueinkenni, þurfi að ferðast milli lands og Eyja, skal áður en til brottfarar kemur hafa samband við Ölmu Ingólfsdóttur í síma 868-4378 eða á netfangið almai@herjolfur.is.
Þá er mikilvægt að fylgja að öllu leyti fyrirmælum stýrimanns þegar til skipsins er komið.
Áfram biðjum við farþega að koma með sitt eigið teppi og kodda sé siglt til Þorlákshafnar. Þá minnum við á að handspritt er staðsett bæði í afgreiðsluhúsum og um borð í Herjólfi.
Herjólfur ohf leggur mikla áherslu á að gæta ítrustu varkárni vegna veirunnar og vill með þessu taka, og sýna samfélagslega ábyrgð vegna málsins.
Forsíðumynd – Linda Bergmann