Laugardagur 17. október 2026
Huginn VE 18.7.24

YFIRLÝSING ÚTGERÐAR HUGINS VE 55 VEGNA DÓMS

Héraðsdómur Suðurlands kvað í dag upp dóm í skaðabótamáli sem reist var vegna tjóns á vatnsleiðslu og ljósleiðara í Vestmannaeyjahöfn eftir atvik þar sem akkeri fiskiskipsins Hugins VE 55 varð til þess að tjón varð á leiðslunum.

Vinnslustöðin hf., Huginn ehf. og VÍS tryggingar hf. voru sýknuð af kröfum stefnenda og viðurkennt að Huginn ehf. og VÍS tryggingar hf. væri heimilt að takmarka ábyrgð sína. Þá féllst dómurinn ekki á að Vinnslustöðin hf. teldist útgerðarmaður skipsins. Málskostnaður var felldur niður.

Við teljum að dómurinn sé mikilvægt skref í úrlausn málsins. Jafnframt liggur fyrir að um er að ræða flókið og fordæmisgefandi mál sem varðar álitaefni um bótaábyrgð og ábyrgð vátryggjanda og líklegt er að fái endanlega úrlausn fyrir æðra dómsvaldi.

Við gerum ráð fyrir að málinu verði áfrýjað og teljum því ekki rétt að tjá okkur efnislega um niðurstöðu dómsins að svo stöddu.

Útgerð Hugins VE mun áfram virða málsmeðferð dómstóla og bíða endanlegrar niðurstöðu áður en frekari athugasemdir verða gerðar.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search