Miðvikudagur 27. september 2023

Yfirlýsing frá forstjóra Vegagerðarinnar

13.10.2020

Frá forstjóra Vegagerðarinnar

vegna umræðu um öryggi á vegum

 

Vegna umræðu um öryggi á vegum að undanförnu vill forstjóri Vegagerðarinnar koma því á framfæri að starfsmenn eru harmi slegnir yfir banaslysi á Kjalarnesi í júnilok og því að slíkar aðstæður hafi getað skapast við venjubundið viðhald á vegum. Vegagerðin vinnur nú að umfangsmikilli endurskoðun á öllum ferlum sem lúta að yfirlögnum á vegakerfinu.  Markmið þeirrar vinnu er að tryggja að slys sem þetta geti ekki komið fyrir aftur.

 

Yfirlýsing frá forstjóra Vegagerðarinnar

Vegna umræðu um öryggi á vegum að undanförnu viljum við hjá Vegagerðinni koma eftirfarandi á framfæri.

Í júní síðastliðnum átti sér stað hræðilegt slys á Kjalarnesi.   Á umræddum vegarkafla var nýlokið viðhaldi á malbiksyfirborði og beindust sjónir strax að frávikum í framkvæmd þessa verks. Rannsóknir á viðnámi á yfirborði sýndu í framhaldinu að miklu munaði að uppfylltar væru kröfur í útboðslýsingu til verksins.  í rannsóknum sem gerðar voru í kjölfarið og enn eru í gangi kemur berlega í ljós að umrætt malbik stóðst ekki útboðskröfur Vegagerðarinnar.  Augljóst samhengi er milli þeirra galla og þeirra aðstæðna sem sköpuðust á slysstað.

Við starfsmenn Vegagerðarinnar erum harmi slegin yfir slysinu og því að slíkar aðstæður hafi getað skapast við venjubundið viðhald á vegum.  Í framhaldi af þessu hafa allir hlutar umrædds verks verið fjarlægðir utan einn sem sannarlega stóðst kröfur til viðnáms.  Verkið sem um ræðir var framkvæmt af verktaka með mikla reynslu.  Sú reynsla kom því miður ekki í veg fyrir þær afleiðingar sem við öll þekkjum.

Vegagerðin vinnur nú að umfangsmikilli endurskoðun á öllum ferlum sem lúta að yfirlögnum á vegakerfinu.  Markmið þeirrar vinnu er að tryggja að slys sem þetta geti ekki komið fyrir aftur.

Bergþóra Þorkelsdóttir

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is