Miðvikudagur 14. október 2026

Yfirheyrsla sjómanna – Óskar Birgir og Björgvin

Í Sjómannadagsblaði Tíguls fengum við nokkra sjómenn til þess að svara nokkrum spurningum um sjómennskuna. Hér er stutt yfirheyrsla af Óskari Birgi og Björgvini.

Óskar Birgir Sigurþórsson

Aldur: 53 ára

Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar: 

Byrjaði á Gjafar ve. 1985 á innfjarða síld hún var veidd í nótt inn á Austfjörðum. Ég var sextán ára.

Hvað heillaði við sjómennskuna: 

Var í raun ekki heillaður af henni hélt alltaf að eldri bróðir minn yrði sjómaður hann var að fara með pabba og afa á sjó. Svo fór vinur minn á Gjafar og ég elti hann. Þetta var erfitt ég var alltaf að berjast við sjóveiki en lét hana ekki sigra mig en það tók mig um tuttugu ár að sigra hana maður lærði að lifa með sjóveikinni. Í dag heillar sjómennskan mig það er gott að vera á sjó..

Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með:

Gestur breyðfjörð skipstjóri er mér alltaf efstur í huga mikill sjómaður og góður félag réri með houm á frysti togara fra Hafnafirði svo má ekki gleyma Grim frá felli einn sá allra skemmtilegasti sem ég hef verið með á sjó. 

Eftirminnilegasti túrinn: 

Eftirminnilegast er þegar ég var á Klakk VE þegar við fylltu skipið nokkrum sinnum af búra og þegar við á Huginn byrjuðum fyrstir að fiska makríl hér við land.

 

Björgvin Þór Björgvinsson

Aldur: 49 ára gamall    

Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar?  Ísfélagi Vestmannaeyja

Hvað heillaði þig við sjómennskuna? Launin

Eftirminnilegasti sjóðmaðurinn sem þú hefur róið með? Magnús Örn Guðmundsson

Eftirminnilegasti túrinn? Fullfermi á frystitogaranum Snorra Sturlusyni, 980 tonn upp úr sjó á 3 vikum.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search