Nú hafa meira en 7.000 tonn af hráefni verið unnin til söltunar hjá Vinnslustöðinni það sem af er ári. Það er meira en var unnið á öllu síðasta ári. Áfanganum var fagnað með tertum með morgunkaffinu síðastliðinn föstudag.
Langstærstur hluti hráefnisins er þorskur en einnig hefur verið unnið töluvert af ufsa. Styttra sumarstopp í vinnslunni á sinn þátt í auknu magni. Þá hafa fjárfestingar Vinnslustöðvarinnar í Portúgal skapað fjölbreyttari framleiðslu- og sölumöguleika í saltfiski. Nú er meðal annars unnið að undirbúningi fyrir mikilvæga jólasölu þar í landi.
Síldarvertíðin er einnig hafin, en fyrsta síldarlöndunin var úr Gullbergi VE í lok síðustu viku. Nánar verður sagt frá vertíðinni síðar.
Til hamingju með glæsilegan áfanga!






