Það hefur farið rólega af stað hið ævintýralega pysjubjörgunartímabil þetta árið en nú virðist hinsvegar vera kominn einhver skriður á. Þegar þetta er skrifað hafa verið vigtaðar 352 pysjur af þeim er búið að vigta 197. Meðalþyngd þeirra er 242 grömm, sú þyngsta 325 g og sú léttasta 175 g. Þá hefur Starsfólk Náttúrustofu nú þegar merkt 75 pysjur. Það er því um að gera að safna saman kössum og halda í björgunarleiðangur þegar myrkra tekur næstu kvöld. Hér að neðan má sjá myndband sem sýnir hvernig best er að haga björgunaraðgerðum.
Föstudagur 13. nóvember 2026

