Laugardagur 30. september 2023

VSV fagnar Fishmas-hátíðinni! – myndband

14.09.2020

Björn Matthíasson, framkvæmdastjóri VSV Seafood Iceland, sölufyrirtækis Vinnslustöðvarinnar, situr í verkefnisstjórn nýrrar markaðsherferðar fyrir íslenskar sjávarafurðir í Bretlandi undir yfirskriftinni Seafood from Iceland.

Að verkefninu standa Íslandsstofa, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og á fjórða tug fyrirtækja sem tengjast sjávarútvegi, tækni og þekkingarmiðlun.

Bretlandseyjar eru fyrsta markaðssvæðið sem tekið er fyrir og þar er byrjað að kynna íslenskt sjávarfang á samfélagsmiðlum, meðal annars með myndbandi sem auglýsingastofan Brandenburg gerði. Yfirskrift þess er Fishmas og sögumaður er Stuðmaðurinn og leikarinn Egill Ólafsson í hlutverki Father Fishmas. Þarna er á gamansaman hátt sögð saga með undirliggjandi tilvísun í jólin, ævintýraheim með Harry Potter-ívafi og fleira.

Vísað er til þess að íslenskur fiskur sé hollur matur, eigi uppruna sinn í hreinum sjó í heilnæmu umhverfi og að fiskistofnar við Ísland séu nýttir á sjálfbæran hátt.

Markaðsherferðin er liður í viðleitni íslensks sjávarútvegs til að þyngja sókn á erlendum mörkuðum og auka útflutningsverðmæti með einu upprunamerki, Seafood from Iceland.

Norðmenn hafa um árabil gert nákvæmlega þetta með góðum árangri, það er að segja að kynna sjávarafurðir sínar á erlendum mörkuðum sameiginlega með einu upprunamerki sem greiðir svo leið einstakra fyrirtækja til að kynna og selja afurðir sínar.

Hér má sjá myndbandið Father Fishmas sem er farið til dreifingar á breskum samfélagsmiðlum.

Greint er frá þessu á vef Vinnslustöðvarinnar

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is