Mánudagur 9. nóvember 2026

Vinnslustöðin ræktaði viðskiptasambönd í Qingdao

Vinnslustöðin var með bás á sjávarútvegssýningunni China Fisheries & Seafood Expo í Qingdao í Kína í síðustu viku, eins og undanfarin ár. Sýningin er ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum og var notuð bæði til að hitta núverandi viðskiptavini og nýja kaupendur.

Á básnum stóðu vaktina Sverrir Haraldsson, yfirmaður erlendrar starfsemi Vinnslustöðvarinnar, Yohei Kitayama, sölustjóri fyrirtækisins í Japan með aðsetur í Tókýó, og Hiroki Igarashi, sem sinnir sölu- og markaðsmálum hjá Vinnslustöðinni hér í Eyjum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra leit við á básnum á fyrsta degi sýningarinnar.

Loðnan ofarlega í huga kaupenda

Megináherslan var á uppsjávarafurðir fyrir Kína, Japan og aðra markaði í Asíu, einkum loðnu, makríl og síld. Kaupendur urðu fyrir vonbrigðum þegar ráðgjöf um loðnuveiðar var lækkuð mikið í október. Hafrannsóknastofnun telur þó að stofninn hafi verið vanmetinn þar sem ekki tókst að mæla allt útbreiðslusvæðið, og vonir standa til að mælingar í vetur skili auknum kvóta.

Hægt á Kínamarkaði

Samkvæmt Vinnslustöðinni hefur hægt á kínverska markaðnum eftir mikinn vöxt síðustu ár. Kaupgeta og eftirspurn kínverskra fyrirtækja hefur minnkað og færri kínverskir kaupendur mættu á sýninguna. Á móti fer eftirspurn vaxandi eftir fiski í fóður fyrir gæludýr og dýr í dýragörðum, og Vinnslustöðin selur einnig hliðarafurðir úr botnfiskvinnslunni til kaupenda í Kína.

Mynd og Heimild: vsv.is

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search