Áfangi 1 í uppbyggingu LAXEY er nú kominn í fulla framleiðslu og gengur samkvæmt áætlun. Öll átta kerin, sem eru 28 metrar í þvermál og rúma um 5.000 rúmmetra hvert, eru komin með lax í ræktun.
Framkvæmdir við vinnsluaðstöðu félagsins eru á lokametrunum og er stefnt að því að fyrsta vinnsla fari fram í nóvember.
Á sama tíma heldur uppbygging á áfanga tvö áfram af krafti. Sex ker eru þegar komin með útveggi og tvö þeirra einnig með þak. Áætlað er að vinna við útveggi og þök ljúki í nóvember.
Að baki verkefninu standa öflugir hluthafar, bæði innlendir og erlendir. Margir þeirra hafa komið inn í félagið á undanförnum tveimur árum í gegnum vel heppnuð hlutafjárútboð. Á síðasta ári bættust við sterkir erlendir fjárfestar sem tengjast allri virðiskeðjunni, allt frá fóðri til sölu.
Þetta kemur fram á facebooksíðu Laxey.
Addi London tók hér nokkrar myndir í gær.









