Dregið var í páskaleik Tíguls í dag og það voru þau Sigríður Sigmarsdóttir, Sigurþór Hjörleifsson og Jóhanna Hjálmarsdóttir sem voru dregin út.
En þau sendu inn rétta tölu af fjölda páskaeggja í páskablaði Tíguls. Rétt tala er 100 egg. Mismiklum tíma var eytt í talninguna en vinningshafarnir voru mjög glaðir og sáttir þegar að þau fengu vinninginn afhendan í dag. Páskaegg og glaðning frá Heima decor.
Til hamingju með þetta!

