Nýr flottur staður að opna um miðjan maí í Baldurshaga
Við heyrðum í Jónu Siggu (Jóna Sigríður Guðmundsdóttir) en hún er að láta langþráðan draum rætast.
Ég hef verið með þennan draum í maganum í langan tíma en þó í aðeins annarri mynd og ákvað að núna væri rétti tímapunkturinn til að láta hann rætast, segir Jóna Sigga.
Hún stendur ein á bak við vínbarinn en segist vera svo heppin að vera með gott fólk í kringum sig sem aðstoðar hana í að gera þetta að veruleika.
Vínbarinn er góð viðbót í breiða flóru hér í Vestmannaeyjum en hann mun verða frábrugðinn öðrum börum hér í eyjum að því leyti að aðaláherlan verður lögð á léttvínsveitingar.
Jóna Sigga ætlar að bjóða upp á árstíðabundna drykki og mun hún í sumar bjóða upp á Sangríu bæði rauðvíns og freyðivíns. Einnig stefnir hún á að vera með þemakvöld þar sem áherslan verðum lögð á ýmis ólík vín. Jóna mun þó einnig bjóða upp á aðra drykki og að sjálfsögðu er hægt að fá gott kaffi.
Hún legg mikið upp úr því að staðurinn verði hlýlegur og huggulegur og var rýmið valið með það í huga. En rýmið er í suðaustur hluta Baldurshaga.
Hún er ótrúlega spennt fyrir opnuninni en hún stefnir á að opna um miðjan maí.


