29.07.2020
Leturstofan í samstarfi með Björgunarfélagi Vestmannaeyja ætla að vera með fallegu blysin okkar inn í dal á föstudagskvöld á undan brennunni.
Til að geta látið þetta verða að veruleika þá þurfum við ykkar hjálp !
Hugmyndin er sú að fyrir eitt blys gefur þú 5000.-kr sem rennur allur til ÍBV og Björgunarfélags Vestmannaeyja.
Leturstofan er komin með aðgang af 150 blysum.
Ef þú hefur áhuga á að vera blysberi og láta gott af þér leiða, komdu þá við á Leturstofuna á morgun fimmtudag frá klukkan 10:00 til 15:00 og láttu skrá þig niður, einnig er hægt að senda okkur á netfangið leturstofan@leturstofan.is
(Leturstofan er á Strandveg 47, beint á móti Krónunni )