Friðrik hjá Kubb heyrði í okkur í dag og bað okkur að koma skilaboðum til lesenda Tíguls í Vestmannaeyjum.
Kæru Eyjamenn í dag lætur vetur konungur vita af sér og viljum við benda ykkur á að moka frá ruslatunnum ykkar svo starfsmenn okkar geti tæmt ruslið hjá ykkur.
Með fyrir fram þökkum til ykkar allra
Kubbur
Mokstursþjónusta:
Ef þú hefur ekki heilsu í að moka hjá þér þá er ungur drengur sem býður fram mokstursþjónustu:
Ég býðst til að moka snjó úr innkeyrslum/af tröppum gegn mjög vægu gjaldi.
Hafið samband í síma 894-2792 eða í einkaskilaboðum.
Kveðja Þráinn


