Hæfnisetur ferðaþjónustunnar fer á flakk og verður í Vestmannaeyjum 14. júní. kl. 11.45 – 13.00
Viltu kynnast því hvernig Hæfnisetrið getur stutt við fyrirtæki?
Hæfnisetrið og Viska boða til súpufundar 14. júní nk. í húsnæði Þekkingarseturs Vestmannaeyja, Ægisgötu 2. Umfjöllunarefni fundarins er kynning á verkfærum sem standa fyrirtækjum í ferðaþjónustu til boða þeim að kostnaðarlausu, svæðisbundið samstarf fyrirtækja og móttaka nýs starfsfólks.
Við viljum jafnframt heyra um ykkar þarfir, því við erum stöðugt að þróa verkfæri sem koma að gagni sem stuðningur við stjórnendur og starfsfólk.
Allir velkomnir og boðið verður upp á súpu og brauð
DAGSKRÁ
11.45 – 11.50 Fundarstjóri
Valgerður Guðjónsdóttir, forstöðumaður Visku
11.50 – 12.15 Verkfæri í boði fyrir ferðaþjónustufyrirtæki
Jóna Valborg Árnadóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
12.15 – 12.30 Velkomin til starfa – móttaka nýs starfsfólks
Bryndís Skarphéðinsdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
12.30 – 12.45 Fræðsla til framtíðar – Sterkari saman
Valdís Steingrímsdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
12.45 – 13.00 Samtal við ferðaþjónustuna
Ef þú kemst ekki á fundinn þá er starfsfólk Hæfnisetursins tilbúið að koma með stutta kynningu til ykkar eftir hádegið á mánudeginum. Sendið okkur endilega póst á haefni@haefni.is og óskið eftir tíma með okkur.


