05.02.2020
Á fundi bæjarráðs í gær gerði bæjarstjóri lauslega grein fyrir þjónustukönnun Gallups fyrir árið 2019 og greindi frá fyrirhuguðum íbúafundi um niðurstöður könnunarinnar sem haldinn verður í dag 5. febrúar 2020 í Eldheimum.
Markmið fundarins er að upplýsa bæjarbúa um stöðu þjónustunnar í Vestmannaeyjum og leita eftir viðbrögðum um hvað megi betur fara og hvernig hægt er að bæta þjónustuna.
Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar eru bæjarbúar almennt ánægðir með þjónustu sveitarfélagsins og er Vestmannaeyjabær meðal annars í efsta sæti þegar spurt er um hversu vel starfsfólk bæjarins leysir úr erindum íbúa.
Bæjarráð vill koma á framfæri þakklæti til starfsmanna sveitarfélagsins fyrir framúrskarandi þjónustu og viðmót.
Þá hvetur bæjarráð alla bæjarbúa til að taka þátt í íbúafundinum annað kvöld og láta þar í ljós skoðun sína á því hvernig hægt er að bæta þjónustuna enn frekar.
Fundurinn verður haldinn í Eldheimum og hefst hann kl 18:00