30.10.2020
Á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs Vestmannaeyjabæjar þann 27. október síðast liðin var tekið fyrir á ný beiðni um framlengingu á leigusamning á líkamsræktarsal í Íþróttamiðstöðinni.
Líkamsræktarstöðin ehf. óskar eftir að framlengja samning um leigu á líkamsræktarsal í Íþróttamiðstöðinni um eitt ár í senn en samningurinn er að renna út um næstu áramót.
Fram kemur í afgreiðslu ráðsins að ráðið geti ekki orðið við þeirri ósk og er sammála því að auglýsa eftir samstarfsaðilum um leigu á líkamsræktarsalnum.
Er það gert til að tryggja eðlilega samkeppni, jafnræði, hagkvæmi og gegnsæi í viðskiptum Vestmannaeyjabæjar í anda laga og innkaupareglna. Líkamsræktarstöðin ehf. sem og aðilar eru hvött til að sækja um þegar auglýst verður.