Bjargið, dagdvöl aldraðra, fékk í dag góða gjöf frá Vilborgarstúku, kvennastúku Oddfellowreglunnar. Stúkan gaf Rad-97 lífsmarkamæli. Þetta er mjög vandaður blóðþrýstingsmælir sem mælir einnig súrefnismettun og öndunartíðni.
Hægt að bregðast fyrr við breytingum
Gjöfin kemur að góðum notum á Bjarginu. Þar eru lífsmörk þjónustuþega mæld í hverjum mánuði til að tryggja öryggi þeirra og góða þjónustu. Með nýja mælinum verður auðveldara að fá skýra mynd af heilsufari þjónustuþega. Ef heilsa þeirra breytist eða vandamál koma upp er hægt að grípa fyrr inn í.
Starfsfólk Bjargsins þakkar Vilborgarstúku innilega fyrir þessa frábæru gjöf.




