Viðræður við Færeyinga um að samnýta gamla Herjólf

Gamli Herjólfur gæti fengið framhaldslíf í Færeyjum en samt þjónað áfram sem varaferja fyrir Vestmannaeyjar, samkvæmt viðræðum sem eiga sér stað við Færeyinga um samnýtingu skipsins segir í frétt á visir.is 

Í fréttum Stöðvar 2 kom fram að eftir að nýi Herjólfur komst í fullan rekstur fyrir tveimur árum hafi hlutverk þess gamla verið í talsverðri óvissu.

„Að liggja verkefnalaust við bryggju fer illa með skip og rekstur og viðhald við þær aðstæður mjög kostnaðarsamt,“ segir í frétt Vegagerðarinnar þar sem skýrt er frá viðræðum við Færeyinga um að samnýta gamla Herjólf með einhverjum hætti.

Rekstrarfélag færeyskra ferja, Strandfaraskip, hafi sýnt áhuga á að taka Herjólf í sína þjónustu sem uppbótarskip til að mæta álagstímum á siglingaleiðum innan Færeyja.

„Skipið verður fullmannað og í reglubundinni notkun en ekki fast í áætlanasiglinum. Það þýðir að skipinu verður viðhaldið og áhöfn er til staðar og ferjan þá einungis í um sólarhrings fjarlægð frá Íslandi.“

Vegagerðin segir það þó grunnforsendu samninga að gamli Herjólfur verði aðgengilegur, þegar þörf reynist á, og verði þannig áfram varaferja fyrir nýja Herjólf.

„Vestmannaeyjar eru háðar ferjusiglingum og hluti af því að búa við slíkar samgöngur er að geta reitt sig á varaleið þegar Herjólfur þarf að fara í reglubundið viðhald og ekki síður ef eitthvað óvænt kemur upp.“

Það sé því áhugavert að sjá hvort samnýta megi skipið bæði í Færeyjum og á Íslandi. Niðurstöðu viðræðna sé að vænta á næstu mánuðum.

Vegagerðin segist vera búin að skoða ítarlega hvort skipið gæti komið í stað Breiðafjarðarferjunnar Baldurs á leiðinni milli Stykkishólms og Brjánslækjar en niðurstaðan sú að hafnarmannvirkin þar henti gamla Herjólfi engan veginn.

Smelltu hér til að sjá alla fréttina einnig fréttina frá Stöð2

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is