Laugardagur 17. október 2026

Viðlagafjara þrem árum eftir fyrstu skóflustungu – myndband af stöðunni

Í frétt frá Laxey fyrr í vikunni:

Þrjú ár frá fyrstu skóflustungu í Viðlagafjöru, Vestmannaeyjum
Þann 17. febrúar 2023 tók Sigurjón Óskarsson, einn af kjölfjárfestum í Laxey, fyrstu skóflustunguna fyrir áframeldið í Viðlagafjöru. „Ég mokaði ekki miklu sjálfur, en það hefur verið mokað heilmikið síðan þá og það er í raun ótrúlegt hvað er búið að gerast .“ Frá þeim degi hafa framkvæmdir þróast hratt, markvisst og í samræmi við upprunalega tímaáætlun.
Nú er fyrsti áfangi kominn í fullan rekstur og er uppbygging á öðrum áfanga vel á veg komin. Öll átta kerin í áfanga 2 hafa verið reist og tæknileg uppsetning stendur yfir. Gert er ráð fyrir að fyrstu kerin fari í notkun í haust og að öll kerin verði komin í rekstur fyrir lok árs.
Uppbygging á stórseiðahúsi félagsins gengur vel og mun hefja starfsemi fljótlega í öðrum ársfjórðungi. Með því eykst framleiðslugeta félagsins samhliða því sem rekstrarsveigjanleiki og áframhaldandi uppbygging styrkjast.
Nú þegar hafa fjórir seiðahópar verið fluttir frá seiðastöð fyrirtækisins í áframeldið og í þessari viku fer fram flutningur á þeim fimmta. Frá nóvember 2025 hafa jafnframt farið fram vikulegar slátranir á um 5 kg laxi sem hafa gengið mjög vel með, gæði góð og ánægðir viðskiptavinir.
Á meðfylgjandi mynd heldur Sigurjón Óskarsson á sömu skóflu og notuð var við fyrstu skóflustunguna 17. febrúar 2023. Laxey stefnir á 5000 þús tonna framleiðslu í ár.
Fyrir neðan er svo myndband frá Halldóri B.

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search