Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja í gær var meðal annars á dagskrá umsókn frá Ólafi Snorrasyni fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar. Hann sótti um leyfi fyrir viðbyggingu við áhorfendastúku. Í viðbyggingunni verður komið fyrir búningklefum ásamt aðstöðu við Hásteinsvöll.
Óverulegt frávík frá deiliskipulagi
Ráðið samþykkti umsóknina en í niðurstöðu ráðsins segir „Að mati ráðsins er um svo óverulegt frávík frá deiliskipulagi að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. ákvæði 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Er því ekki talið að gera þurfi breytingu á deiliskipulag svæðis.“