Miðvikudagur 6. desember 2023

Viðbrögð Vestmannaeyjabæjar við hertum samkomutakmörkunum

06.10.2020

Vegna hertra samkomutakmarkana stjórnvalda í ljósi fjölgunar Covid-19 smita á landinu, hefur viðbragðstjórn Vestmannaeyjabær sent frá sér uppfærðar reglum um starfsemi bæjarins, sem sendar hafa verið framkvæmdastjórum og forstöðumönnum stofnana bæjarins til framkvæmdar.

Opnunartími stofnana Vestmannaeyjabæjar verður óbreyttur áfram, en fólk er hvatt til að nýta sér rafrænarlausnir eða símaþjónustu sé þess einhver kostur frekar en að mæta á staðinn. Staðan verður endurmetin reglulega. Sérreglur gilda um leik- og grunnskóla, Hraunbúðir, Heimaey hæfingarstöð, Sambýlið og Íþróttamiðstöðina. Forstöðumenn umræddra stofnana hafa útbúið og birt reglur.

Allir formlegir fundir á vegum stofnanna bæjarins, sem telja fjóra eða fleiri fundarmenn, eiga að fara fram með fjarfundabúnaði. Fundir nefnda, ráð og bæjarstjórnar Vestmannaeyja muna fara fram með fjarfundarbúnaði næstu tvær vikur eða á meðan þessar hertu takmarkanir eru í gildi.

Vinnferðir á vegum sveitarfélagsins eru ekki heimilar næstu meðan auglýsing heilbrigðisráðherra um hertar takmarkanir eru í gildi. Starfsfólki Vestmannaeyjabæjar er aðeins heimilt að „sækja“ fundi uppi á landi í gegnum fjarfundarbúnað.

Búið er að gera viðeigandi ráðstafanir á stofnunum bæjarins til þess að tryggja fjarlægðarmörk og sóttvarnir. Búið er að skipta upp kaffitímum, þar sem það er nauðsynlegt, og tryggja starfsfólki grímur, spritt og annan sóttvarnarbúnað.

Öllum viðburðum á vegum bæjarins verður frestað, a.m.k.á meðan samkomutakmarkanir eru í gildi.

Starfsfólk á að halda ferðum á milli stofnana og starfsstöðva í algjöru lágmarki.

Ítrekað hefur verið við forstöðumenn og starfsfólk að virða metersregluna í öllum samskiptum, þ.m.t. við samstarfsfólk á vinnustöðum.

Búið er að yfirfara og uppfæra viðbragðsáætlun Vestmannaeyjabæjar og birta á vef bæjarins; vestmannaeyjar.is

Vestmannaeyingar eru hvattir til að virða reglur og tilmæli stjórnvalda og sóttvarnarlæknis. Jafnframt er fólk hvatt til að stilla ferðum til og frá Eyjum í hóf og taka fjarlægðarmörkum alvarlega. Vestmannaeyingar voru svo rækilega minntir á afleiðingar Covid-19 síðastliðið vor. Gerum hvað við getum til að láta þetta ganga upp og höldum áfram að sinna eigin smit- og sóttvörnum.

Íris Róbertsdóttir
bæjarstjóri

Birt af vef Vestmannaeyjabæjar / Forsíðumynd Halldór B. Halldórsson

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is