Föstudagur 1. desember 2023

Við erum áfram á neyðarstigi almannavarna yfir hjúkrunarheimili

17.11.2020

En er óbreytt fyrirkomulag með heimsóknir á Hraunbúðum.

Á heimasíðu Hraunbúða segir:

Við erum áfram á neyðarstigi almannavarna yfir hjúkrunarheimili. Við þurfum að halda þetta út öll saman sem eitt lið, við vonumst eftir hinu besta og að allt gangi vel en þurfum að vera undirbúin til að takast á við sýkingar ef þær koma inn. Við munum því halda sama fyrirkomulagi og verið hefur varðandi heimsóknartíma til 2.desember.

Við óskum eftir að aðstandendur panti heimsóknartíma meðan núverandi ráðstafanir eru í gildi. Heimsóknir eru leyfðar 2x í viku á hvern íbúa.

Gestir til íbúa á austurgangi komi inn af pallinum við austurenda húss.  Gestir til íbúa á  vesturgangi komi inn um aðalinngang.

Áfram gilda sömu reglur um að sá hinn sami heimsæki íbúa yfir eina viku, gestir sinni ítarlegum sóttvörnum í formi handþvottar og sótthreinsunar, noti grímur, virði fjarlægðartakmörk (2 m) og að heimsóknir fari fram á einkarými íbúa.

Fyrirkomulagið er þannig að aðstandendur panta heimsóknartíma í gegnum netfangið vakt@vestmannaeyjar.is og helst sama tíma yfir þessar tvær vikur.  Tölvupóstinum þarf að fylgja nafn á þeim sem kemur í heimsókn, hvern á að heimsækja og óskir um dagssetningar og tímasetningar.  Undanþágur eru aðeins veittar ef um alvarleg veikindi íbúa er að ræða og þá í gegnum hjúkrunarforstjóra eða deildarstjóra hjúkrunar.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is