Ísfisktogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE hafa báðir landað fullfermi í Neskaupstað síðustu dagana. Bergey kom til löndunar á sunnudag og Vestmannaey á mánudaginn. Á heimasíðu svn.is er talað við skipstjórana og fræðst um veiðarnar.
Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, var ánægður með túrinn. ”Við fórum út á fimmtudagskvöld og komum til löndunar á sunnudagsmorgun þannig að veiðarnar gengu býsna vel. Það vantaði fisk í vinnsluna hjá Vísi í Grindavík þannig að við höfðum heimild til að taka þorsk í túrnum og langmestur hluti aflans var þorskur. Við vorum mest að veiðum í Litladýpinu og síðan einnig við Gullfestuna. Veður var ljúft og gott og í reynd gekk þetta eins og best verður á kosið,” sagði Ragnar Waage.
Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að nokkuð hefði verið leitað að ýsu í þeirra túr en það hefði ekki gengið vel. ”Við byrjuðum að toga á Pétursey og héldum austur eftir í ýsuleitinni en ýsan lætur bíða eftir sér. Við enduðum á Þórsbankanum og þar var góð veiði. Það fæst alltaf fallegur fiskur á Þórsbanka og þar fékkst núna þorskur og talsvert af blálöngu. Um helmingur aflans í veiðiferðinni var þorskur en síðan var þetta mest blálanga, ufsi og karfi,” sagði Birgir Þór.

