Laugardagur 17. október 2026

Vestmannaeyjaskipin landa fyrir austan

Ísfisktogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE landa í Neskaupstað um þessar mundir. Bergey landaði um 60 tonnum í gær og Vestmannaey landar fullfermi í dag. Heimasíða Síldarvinnslunnar heyrði hljóðið í skipstjórunum og grennslaðist fyrir um gang veiðanna.

Jón Valgeirsson á Bergey sagði að þeir hefðu verið kallaðir inn vegna þess að fisk hefði vantað í vinnsluna hjá Vísi í Grindavík. ”Þetta var stuttur túr. Við byrjuðum á að reyna við ýsu á Gerpisflakinu og fengum þar blöndu af ýsu og þorski. Síðan var keyrt í Litladýpið og þar voru tekin tvö þorskhol. Við vorum heppnir með veður í túrnum en við biðum af okkur brælu í Neskaupstað áður en haldið var til veiða,” sagði Jón.

Egill Guðni Guðnason á Vestmannaey var ánægður með veiðiferðina. ”Það eina sem skyggði á þennan túr var ýsuveiðin. Við reyndum við ýsu með of litlum árangri en fengum þó um 30 tonn af henni. Veitt var á Gerpisflaki, Skrúðsgrunni, Berufjarðarál og Breiðdalsgrunni og leitin að ýsunni var stöðug. Það var þokkalegasta veður í túrnum en nú er bræla framundan og ég reikna með að ekki verði farið út á ný fyrr en á föstudag vegna veðursins,” sagði Egill Guðni.

 

Ljósmynd: Jón Steinar Sæmundsson.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search