Laugardagur 17. október 2026

Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði

Breska sjávarútvegsblaðið Fish Focus heimsótti nýverið Ísland þar sem blaðamenn miðilsins kynntu sér íslenskan sjávarútveg, samfélög og fyrirtæki sem starfa í greininni. Í ferðinni var sérstök áhersla lögð á Vestmannaeyjar, þar sem sjávarútvegur hefur mótað atvinnulíf og mannlíf um áratugaskeið.

Í ítarlegri umfjöllun blaðsins dvelur Fish Focus við heimsókn sína til Vinnslustöðvarinnar og lýsir fyrirtækinu sem hjarta samfélagsins í Vestmannaeyjum. Blaðamenn heimsóttu Vinnslustöðina og kynntu sér starfsemina í fylgd Sverris Haraldssonar, sviðsstjóra botnfisksviðs VSV.

Hefð, gæði og nútímatækni

Í umfjölluninni er fjallað um vinnslu VSV á saltfiski þar sem hefðbundnar aðferðir eru sameinaðar nútímatækni til að tryggja hágæða afurðir. Saltfiskur er ein verðmætasta útflutningsafurð Íslands og nýtur mikilla vinsælda á alþjóðamörkuðum, meðal annars í Suður-Evrópu og Karíbahafinu.

Blaðamenn Fish Focus fóru einnig um borð í togara VSV, Breka VE. Þar kynntu þau sér veiðiaðferðir og hvernig aflinn er meðhöndlaður með hámörkun gæða að markmiði.

Sterk tengsl við samfélagið

Í greininni er lögð áhersla á þá sérstöðu sem felst í staðsetningu VSV í Vestmannaeyjum. Stutt sigling til fiskimiða gerir kleift að landa og vinna fisk nánast strax eftir veiðar, sem stuðlar að gæðum, minni umhverfisáhrifum og aukinni sjálfbærni.

Fram kemur í umfjölluninni að Vinnslustöðin sé einn stærsti vinnuveitandi Vestmannaeyja með um 300 starfsmenn allt árið og fleiri á vertíðum. Um 7% íbúa eyjanna starfa hjá fyrirtækinu og margar fjölskyldur hafa haft afkomu sína af starfseminni í gegnum kynslóðir.

Sjálfbærni og framtíðarsýn

Fish Focus fjallar einnig um áherslur VSV á sjálfbærni og ábyrgð í rekstri. Bent er á að fyrirtækið starfi samkvæmt ströngum gæðakerfum og er vottað af Iceland Responsible Fisheries. Jafnframt hefur VSV á síðustu árum eflt starfsemi sína með nútímavæðingu vinnslu, kaupum á öðrum fyrirtækjum og opnun söluskrifstofa víða um heim.

Í lok umfjöllunarinnar er Vinnslustöðin sögð meira en sjávarútvegsfyrirtæki – hún sé órjúfanlegur hluti af sjálfsmynd Vestmannaeyja og lifandi dæmi um hvernig samfélag getur byggt upp öfluga atvinnustarfsemi í sátt við náttúruna og hafið.

Hér má sjá alla umfjöllun Fish Focus.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search