12.03.2020
Skemmtileg frétt frá Visir.is
ÍBV tryggði sér bikarmeistaratitil karla um síðustu helgi og hefur ÍBV þar með unnið fimm stóra titla frá og með árinu 2017. Vísir skoðaði titlasöfnum bæjanna á Íslandi undanfarin ár út frá höfðatölu.
Vísir ákvað að skoða titlasöfnum bæjanna á Íslandi í karla- og kvennaflokki í þremur stærstu boltagreinunum, fótbolta, handbolta og körfubolta. Þetta eru Ísland- og bikarmeistaratitlar undanfarin fjögur ár.
Reykjavík er með flesta íbúa og líka flesta titla. Alls hafa Reykjavíkurfélögin unnið nítján titla á þessum tíma en það dugar þó ekki til að komast ofarlega á titlalistanum út frá höfðatölu. Þar eru Eyjamenn með „yfirburðarforystu“ ef svo má kalla.
Eyjamenn eru líka mikið bikarlið enda með fjóra bikarmeistaratitla í karla og kvennaflokki frá og með árinu 2017. Karlalið ÍBV á þrjá af fimm stóru titlum Vestmannaeyja frá 2017 en sumarið 2017 urðu bæði karla og kvennalið ÍBV í fótbolta bikarmeistari.
Það á auðvitað eftir að afhenda alla Íslandsmeistaratitla á árinu 2020 sem og bikarmeistaratitlana í fótboltanum. Það er því tími fyrir önnur bæjarfélög á Íslandi til að bæta sína stöðu á listanum.
Akureyringar gera síðan örugglega athugasemd við það að blak og íshokkí eru ekki talin í þessari samantekt með en með því myndi bærinn fá ellefu titla til viðbótar og komast upp í þriðja sætið. Vestmanneyingar myndu líka missa toppsætið til Neskaupstaðar en tveir titlar kvennaliðs Þróttar N. í blaki árið 2018 myndu kom þeim á toppinn með 735 íbúa á hvern titil.
Íbúar á hvern stóran titil í þremur stærstu boltagreinunum frá 2017 til 2020:
(Íslands- og bikarmeistarar karla og kvenna í fótbolta, handbolta og körfubolta)
Vestmannaeyjar (5 titlar) 864 íbúar á hvern titil
Borgarnes (1 titill) 2012 íbúar á hvern titil
Sauðárkrókur (1 titill) 2612 íbúar á hvern titil
Selfoss (2 titlar) 4034 íbúar á hvern titil
Garðabær (4 titlar) 4039 íbúar á hvern titil
Reykjanesbær (3 titlar) 6219 íbúar á hvern titil
Reykjavík (19 titlar) 6709 íbúar á hvern titil
Hafnarfjörður (2 titlar) 14890 íbúar á hvern titil
Kópavogur (4 titlar) 18296 íbúar á hvern titil
Akureyri (1 titill) 18880 íbúar á hvern titil
Titlar sem voru teknir með í þessari samantekt
Íslandsmeistarar í knattspyrnu karla
2017 – Valur, Reykjavík
2018 – Valur, Reykjavík
2019 – KR, Reykjavík
Íslandsmeistarar í knattspyrnu kvenna
2017 – Þór/KA, Akureyri
2018 – Stjarnan, Garðabæ
2019 – Valur, Reykjavík
Bikarmeistarar í knattspyrnu karla
2017 – ÍBV, Vestmanneyjar
2018 – Stjarnan, Garðabæ
2019 – Víkingur, Reykjavík
Bikameistarar í knattspyrnu kvenna
2017 – ÍBV, Vestmanneyjar
2018 – Breiðablik, Kópavogur
2019 – Selfoss
Íslandsmeistarar í handbolta karla
2017 – Valur, Reykjavík
2018 – ÍBV, Vestmanneyjar
2019 – Selfoss
Íslandsmeistarar í handbolta kvenna
2017 – Fram, Reykjavík
2018 – Fram, Reykjavík
2019 – Valur, Reykjavík
Bikarmeistarar í handbolta karla
2017 – Valur, Reykjavík
2018 – ÍBV, Vestmanneyjar
2019 – FH, Hafnarfjörður
2020 – ÍBV, Vestmanneyjar
Bikameistarar í handbolta kvenna
2017 – Stjarnan, Garðabæ
2018 – Fram, Reykjavík
2019 – Valur, Reykjavík
2020 – Fram, Reykjavík
Íslandsmeistarar í körfubolta karla
2017 – KR, Reykjavík
2018 – KR, Reykjavík
2019 – KR, Reykjavík
Íslandsmeistarar í körfubolta kvenna
2017 – Keflavík, Reykjanesbær
2018 – Haukar, Hafnarfjörður
2019 – Valur, Reykjavík
Bikarmeistarar í körfubolta karla
2017 – KR, Reykjavík
2018 – Tindastóll, Sauðárkrókur
2019 – Stjarnan, Garðabæ
2020 – Stjarnan, Garðabæ
Bikameistarar í körfubolta kvenna
2017 – Keflavík, Reykjanesbær
2018 – Keflavík, Reykjanesbær
2019 – Valur, Reykjavík
2020 – Skallagrímur, Borgarnes
Frétt tekin frá visi.is