Nýverið sögðum við frá því að Vestmannaeyjaflugvöllur væri væntanlegur í hin klassíska og sívinsæla tölvuleik Microsoft Flight Simulator. En í gær var viðbótin gefin út og er hægt að kaupa hana á Simmarket.
Eins og sjá má á myndunum hér á neðan fylgja helstu mannvirku og byggingar í kringum flugvöllinn og má meira að segja ganga inn í flugstöðina. Samkvæmt tilkynningu frá Simmarket eru í viðbótinni; nákvæm módel af flugstöðinni að utan og innan, sérsmíðuð næturlýsing, sérsmíðuð flugvélastæði í takt við raunveruleg stæði, sérhannað umhverfi, fólk og hlutir.
Það er virkilega skemmtilegt að skoða myndirnar sem fylgja þó fjöllin okkar líkist meira háum hólum en raunverulegum fjöllum. Það líka er gaman til þessa að vita að einhver umferð er um flugvöllin okkar þó ekki sé nema í tölvuleik.


















