Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í gær var samþykktur kaupsamningur í húseignina Skildingavegur 4 fmr.218-4526 . Kaupverð er 30 milljónir króna og er samningur gerður með fyrirvara um samþykki framkvæmda- og hafnarráðs og bæjarráðs.
„Ráðið samþykkir fyrirliggjandi kauptilboð og óskar eftir því við bæjarráð að veitt verði auka fjárveiting upp á 2,5 milljónir á árinu 2022 sem mætt verði með eigin fé Vestmannaeyjahafnar.
Ráðið lýsir yfir ánægju með að húseignir að Skildingavegi 4 komist í eigu hafnarinnar og unnt sé að skipuleggja framtíðar athafnasvæði í kringum Herjólf.“

