Föstudagur 13. nóvember 2026

Vestmannaeyjabæjar býður frítt í sund á morgun 17. febrúar

Fáðu þér G-vítamín!

Aukaskammtur G-vítamíns miðvikudaginn 17. febrúar: Frítt í sund um allt land! Miðvikudaginn 17. febrúar bjóða sveitarfélög um allt land frítt í sund sem aukaskammt af G-vítamíni dagsins sem er „Hreyfðu þig daglega“. Að fara í sund, taka 100 metrana eða bara láta þreytuna líða úr sér í pottinum er G-vítamín í sinni tærustu mynd!

Hægt verður að sjá lista yfir þær sundlaugar sem taka þátt hér: gvitamin.is/sund

Um G-vítamín á þorra:

Við þurfum öll að rækta og vernda geðheilsu okkar út lífið. Rétt eins og með líkamlega heilsu, þar sem öllum er ráðlagt að taka vítamín daglega, gerir margt smátt eitt stórt í geðrækt. Geðhjálp býður því 30 skammta af G-vítamíni á þorranum; ráðleggingar sem er ætlað að bæta geðheilsu. Það eina sem þarf að gera er að taka þátt og nýta sér G-vítamínið, sem er ókeypis og án aukaverkana!

G-vítamín dagsins: Hreyfðu þig daglega

Tímarnir hafa breyst. Kyrrseta er orðin algengari en áður en á sama tíma hafa hraði og streita aukist. Þess vegna hefur hreyfing aldrei verið mikilvægari. Ef þú hreyfir þig reglulega, minnkar streita og spenna og lífsgæðin aukast. Leyfðu árstíðunum að hafa áhrif á val þitt. Ekki ætla þér um of og hikaðu ekki við að biðja um leiðbeiningar eða aðstoð. Hreyfðu þig með öðrum eins oft og þú getur. Notaðu tónlist, ef þér finnst hún hvetja þig áfram eða hjálpa þér að slaka á. Finndu þann tíma sem hentar best og mundu eftir mikilvægi öndunar meðan á hreyfingunni stendur. Virtu líkama þinn, ekki festast í að breyta honum með ytri viðmið að leiðarljósi, einblíndu frekar á hið innra.

Rannsóknir hafa sýnt að hreyfing vinnur með geðheilsu.

G-vítamínið er byggt á Geðorðunum 10 og 14 Lífsorðum Héðins Unnsteinssonar og Þórdísar Rúnarsdóttur.

Við búum öll við geð, rétt eins og við erum öll með hjarta

Allar frekari upplýsingar veita:

Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, grimur@gedhjalp.is og í síma 777 6666

Ásta Briem, verkefnastjóri G-vítamíns, asta@gedhjalp.is og í síma 695 9377

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search