Vestmannaey VE við veiðar á svæði sem reyndist lokað

Landhelgisgæslan hafði í gær afskifti af Vestmannaey VE, skipi Bergs-Hugins ehf. dótturfélags Síldarvinnslunnar, vegna veiða á Glettinganesgrunni í svokölluðum Skáp

Við skoðun kom í ljós að tímabundið bann við veiðum með flotvörpu hafði verið sett á umrætt svæði með reglugerð í lok júní sl. en skipstjóra var ekki kunnugt um reglugerðina eða að svæðinu hefði verið lokað.

Var skipinu því snúið til hafnar í Neskaupstað þar sem verður landað úr því. Virðist hafa farist fyrir hjá þar til bærum yfirvöldum að birta reglugerð um tímabundið bann á samráðsgátt eins og vænta mátti. Skýrslutöku vegna málsins er lokið og ráðgert er að Vestmannaey haldi á ný til veiða síðar í dag.

Greint er frá þessu á vef Síldarvinnslunar.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is