Vestmannaey VE kom til Seyðisfjarðar í gærmorgun og landaði þar fullfermi. Að sögn Birgis Þórs Sverrissonar skipstjóra varr aflinn að mestu leyti þorskur. Vestmannaey hélt til veiða aðfaranótt föstudags og hóf veiðarnar á Víkinni. Síðan var haldið austur með og endað á Tangaflakinu.
Bergur VE landaði einnig fullfermi í Vestmannaeyjum í gær. Jón Valgeirsson skipstjóri sagði aflann vera þorsk sem fékkst á Pétursey og Vík og ufsi sem fékkst í Reynisdýpinu. Farið var út strax að löndun lokinni.