Mánudagur 9. nóvember 2026

„Verum viðbúin“: Nýr bæklingur um hvernig heimilin búa sig undir áföll

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur gefið út bæklinginn „Verum viðbúin“ með hagnýtum ráðum um hvernig heimili geta búið sig undir röskun á daglegu lífi, svo sem vegna náttúruhamfara, óveðurs, rafmagnsleysis eða bilana í fjarskiptum.

Útvarp, vasaljós og lyf

Í bæklingnum er farið yfir hvar finna má áreiðanlegar upplýsingar á hættutímum og hvaða búnað er gott að eiga heima, til dæmis útvarp með rafhlöðum, hleðslubanka, vasaljós og lyf. Bæklingurinn er á íslensku, ensku og pólsku, auk útgáfu á auðlesnu máli og táknmáli.

„Viðbúnaður er ekki einungis verkefni stjórnvalda, heldur okkar allra,“ segir Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeildinni.

Prentuð eintök dreift fram á sunnudag

Bæklingurinn verður sendur rafrænt í gegnum Ísland.is og er einnig aðgengilegur á verumvidbuin.is. Prentuðum eintökum verður dreift á völdum stöðum um land allt dagana 4.–8. nóvember, þar sem sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar aðstoða samhliða sölu Neyðarkallsins.

Fyrir Eyjamenn, sem þekkja það vel að vera háðir veðri og samgöngum, er þetta góð áminning um að eiga það helsta til taks.

Lesa bækling hér: 

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search