Frábært framtak hjá Þóru Hrönn Sigurjónsdóttir sem fékk góðar konur til að taka þátt í þessu flotta verkefni, Þóra Hrönn segir frá:
Þar sem ég elska að vera umhverfisvæn, endurvinna og endurnýta fékk ég mömmu, Ágústu og Erlu pokasaumakonur til að sauma fjölnota brauðpoka. Þessir pokar eru til sölu í Vigtin – Bakhús – allur ágóði rennur til Gleðigjafanna. Ég hvet ykkur til að slá tvær flugur í einu höggi, styrkja gott málefni og vera umhverfisvæn. Vigtin – Bakhús gefur okkur sem notum pokana afslátt. Ég vil líka hvetja ykkur til að koma með eigin krukkur undir salöt í bakaríið þá færðu líka afslátt. Tökum þátt þegar einskaklingar og fyrirtæki í bænum leggja sitt af mörkum við að vera umhverfisvænni.