Miðvikudagur 18. nóvember 2026

Verslunin póley 14 ára

Verslunin Póley varð fjórtán ára um daginn í tilefni þess heyrðum við í Ernu og rifjuðum upp gamla tíma 

Hvernig byrjaði þetta allt saman og hvernig kom hugmyndin af því að opna gjafavöruverslun?
Vorið 2007 höfðu systurnar Hafdís og Berglind Kristjánsdætur frænkur mínar samband við mig. En þær áttu og ráku Póley og voru að flytja inn vörur frá Póllandi, kristal, keramik og stell og ætluðu að selja, og vildu ath hvort ég hefði áhuga á að kaupa af þeim. En ég var alveg búin að vera með smá fiðring í maganum um að fara í einhvern verslunarrekstur.

En ég vann í nokkur ár í Miðbæ hjá Dúddý og fann að þetta átti vel við mig og mér fannst þetta mjög skemmtilegt.
Ég hafði samband við Kristný mágkonu mína hvort hún væri ekki til í þetta með mér og þannig hófst búðarreksturinn hjá okkur mágkonunum og opnuðum við 18. maí 2007 Gjafavöruverslunina Póley á Strandvegi 45.

Hefur verslunin breyst mikið frá því þú byrjaðir, þá vörur og þessháttar?
Vöruúrvalið hjá okkur var til að byrja með áfram vörur sem við fluttum inn frá Póllandi. En áður en við vissum af voru þessar vörur orðnar í minnihluta hjá okkur, því við vorum ekki í vandræðum með að versla inn þar sem við erum báðar mjög kaupglaðar.

Ári seinna fluttum við okkur yfir á Heiðarveg 9 í stærra og betra húsnæði og ekki vorum við lengi að fylla það.
Við vorum líka duglegar að fara út á sýningar og fluttum sjálfar inn allskonar vörur sem enginn annar var með.
í byrjun júní 2010 þá færðum við okkur í húsnæðið sem Póley er í í dag, Bárustíg 8. Það er frábær staðsetning og svo miklu skemmtilegra að vera í miðbænum, miklu meira líf.

Þá tökum við t.d. inn Skartgripina frá Inga í Sign sem hafa verið mjög vinsælir enda ótrúlega fallegir.
Vorið 2014 hættir Kristný og við Gylfi kaupum hana út úr rekstrinum og erum búin að reka Póley síðan með aðstoð frábærra starfskvenna í gegnum árin og ekki má gleyma að hrósa strákunum mínum fyrir alla hjálpina.

Ertu að taka mikið af nýjum vörum inn yfir allt árið?
Ég hef reynt að hafa vöruúrvalið sem fjölbreyttast t.d. þá erum við með vörurnar frá IIttala, matarstellið frá Bitz, Design letters, Kartell, skartgripi frá Sign, By Lovisa og Vera Design. Sængurfatnað og fatnað frá Snurk, íslenska hönnun t.d. Fuzzy, As We Grow, Hekla Íslandi, ihanna og Sveinbjörgu. Sælkeravörur frá Stonewall Kitchen og Lakrids By Johan Bulow, húðvörur frá Volare og Eco By Sonya . Kaffi og kaffívélina frá Sjöstrand, allskonar fyrir barnið t.d. Lulla Doll, Heico lampa, dúkkuvagna og rúm frá Sebra.
Svo er ég að flytja inn vörur frá Hollandi, Snurk og Present Time, Lene Bjerre frá Danmörku og Voluspa kertin frá Ameríku.

Hvernig hefur síðasta ár verið hjá ykkur svona í miðjum heimsfaraldri? Hvernig gekk að fá vörur erlendis frá?
Þetta Covid ár er búið að vera mjög skrítið. Fyrst hélt maður að það yrði ekkert að gera en þá tók heimasíðan svaka kipp, höfum aldrei sent eins mikið og út um allt land eins og síðasta ár. Einnig var meira af íslendingum á ferðinni og þeir versla miklu meira en þeir erlendu.

Einnig eru Vestamannaeyjingar mjög duglegir að versla hjá okkur og í eyjum almennt, enda væri þetta ekki að ganga upp án þeirra og erum við þakklát fyrir það.

Á síðast árgangsmóti hjá mér, en ég er í eðal árganginum 67, þá komu nokkrar með minnisbækur síðan úr barnaskóla og í þeim svaraði maður allskonar spurningum og t.d. var ein, hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðin stór, og í öllum bókunum hafði ég svarað húsmóðir og búðarkona.
Þannig að ég náði mínum markmiðum.

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search