Málþing á vegum Vitafélagsins – íslenskrar strandmenningar í samstarfi við heimamenn og menningar- og viðskiptaráðuneytið Sagnheimum laugardaginn 23. apríl 2022
- 11:00 Setning og fundarstjórn Sigurhanna Friðþórsdóttir, safnstjóri Sagnheima, byggðasafns
- 11:05 – 11:25 Menningararfleifð og miðlun hennar til komandi kynslóða. Tryggvi Hjaltason, starfsmaður CCP
- 11:25 – 11:45 Lifandi hefðir – súðbyrðingurinn á heimsminjaskrá UNESCO. Rúnar Leifsson, sérfræðingur hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu
- 11:45 – 12:15 Boðið upp á súpu, brauð og kaffi. Tónlistaratriði í boði Safnahúss
- 12:15 – 12:35 Að sigla sinn sjó – Einar Jóhann Lárusson, nemi í bátasmíði
- 12:35 – 12:55 Auður samstarfs – Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Vitafélagsins -íslenskrar strandmenningar
- 12:55 – 13:00 Lokaorð Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri
- 13:00 – 13:15 Almennar fyrirspurnir
Að loknu málþingi verður boðið upp á heimsókn í Þekkingarsetur Vestmannaeyja og á Sjóminjasafn Þórðar Rafns þar sem haldin verður stutt kynning á þeim súðbyrðingum sem þar er að finna.
Áætlað er að fara á einkabílum og verður séð um að ferja þá sem þess þurfa með.
Kaffi og konfekt á Sjóminjasafninu.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!

