Sunnudagur 18. október 2026

Verkfærakista náttúrulækninganna hefur reynst mér vel

Heiða Björk, næringarþerapisti og Ayurveda ráðgjafi verður á ferð í Eyjum sunnudaginn 28. ágúst nk. og ætlar að bjóða upp á Ayurveda dekur og fræðslu. Heiða Björk er ekki alveg ókunn Eyjunum enda fædd hér. „Ég flutti með foreldrunum í gosinu og var þá á sjötta ári. Við bjuggum á Suðurvegi sem nú er ca 15 metrum undir. Við  snerum því ekki aftur, þar sem foreldrarnir misstu nær allt sitt,“ sagði Heiða í samtali við Tígul. „Við fluttum í viðlagasjóðshús frá Finnum í Mosfellsbæinn og þar ólst ég upp.“

Heiða Björk hefur verið í náttúrulækningum frá því um tvítug þegar hún tók að stúdera íslenskar lækningajurtir og mataræði. „Oft reyndist verkfærakista náttúrulækninganna mér mjög vel svo sem í glímunni við eyrnabólgur sonarins, þegar endalausir sýklalyfjakúrar höfðu ekki skilað neinu og átti að fara að setja rör í hann. Eða þegar ég sjálf fékk kinnholusýkingar trekk í trekk og sama var upp á teningnum með sýklalyfin. Þau virkuðu í skamman tíma og alltaf tók þetta sig upp aftur, þar til ég breytti mataræði og vann með höfuðbeina og spjaldhryggs meðferðaraðila. Þá loksins lagaðist ég,“ sagði Heiða og hélt áfram. „Eða 

þegar ég og barnsfaðir minn losuðum soninn við Tourette´s kippi og kæki með náttúrulækningum á aðeins 2 mánuðum með allsherjar breytingu á mataræði og lífsstíl. Svona gæti ég áfram talið. En, þar sem ég skrifaði greinar í blöðin um stórkostlegan árangur í glímunni við tourette´s fór fólk í sömu sporum að hafa samband við mig og leita eftir aðstoð. Mér leið ekki vel með að vera að stunda ráðgjöf allsendis ólærð í þessum fræðum og þannig æxlaðist það að ég fór að læra næringarþerapíu í 3 ár í skóla á Englandi. Lífið og tilviljanir urðu síðan til þess að ég fór að mennta mig í ayurveda lífsvísindunum sem eru eins og næringarþerapía á sterum. Mun umfangsmeira kerfi og áhrifaríkara þar sem það tekur inn í meðferðina meðfædda líkamsgerð hvers og  eins og að auki er nálgunin heildrænni. En í ayurveda er litið á manninn sem líkama, huga og anda og er mikilvægt að hlúa að öllum þremur þáttunum.“

Ayurveda hefur ekki verið í boði á Íslandi fram til þessa. Þessi fræði voru fyrst þýdd á enska tungu fyrir um 30 árum og lítið er til af lesefni á íslensku. „Engir ayurveda læknar starfa á Íslandi og enginn praktiker en það er það nám sem ég er að ljúka núna,“ sagði Heiða. „Ég er farin að vinna meira út frá ayurveda vísindunum þegar ég fæ fólk til mín í heilsuráðgjöf þar sem mér finnst þau fræði áhrifaríkari en ég nota þó hina vestrænu næringarþerapíu inn á milli í bland.“ 

Aðspurð segist Heiða lítið sem ekkert farið til Eyja eftir gos, fyrr en síðustu ár þegar stjúpmóðir hennar og bróðir fluttust bæði til Eyja með nokkurra ára millibili. „Því fannst mér það alveg tilvalið að slá tvær flugur í einu höggi, – kynna þessi stórkostlegu vísindi fyrir Eyjamönnum og hvernig hægt er að nota þau til að bæta heilsuna og næra ræturnar í leiðinni. Enda finnst mér alltaf jafn dásamlegt að koma til Eyjanna fögru.“

Þar sem Heiða mun dvelja í nokkra daga í heimsókn hjá bróður sínum segist hún geta tekið nokkra í ayurveda ráðgjöf daginn eftir námskeið ef einhver hefur áhuga.  „Fyrsta heimsókn í ayurveda ráðgjöf er lengri og tekur 1,5 klst þar sem farið er yfir heilsufarssögu, tunga, augu og fleira er skoðað og leitað að rót ójafnvægisins ef um vanheilsu er að ræða.

Til að ná líkamanum aftur í jafnvægi þarf að vinna á rótinni sem er gert með mataræði sem róar þau öfl sem eru komin úr böndunum, jurtum og lífsstíl s.s. leikfimi eða jóga æfingun, öndunaræfingum, hugleiðslu, hreyfingu úti í náttúrunni svo eitthvað sé nefnt.  Fólk kemur síðan í endurkomu einum, tveimur eða þremur mánuðum síðar þar sem farið er yfir árangur og kúrsinn lagfærður ef ástæða er til og næstu skref ákveðin. Ég nota zoom talsvert til að taka fólk í ráðgjöf rafrænt og það hefur reynst vel. Fólk kemur til mín með margbreytileg vandamál eins og kulnun og orkuleysi, IBS meltingarvanda, hægðatregðu, lið- og vöðvaverki, kvíða, þunglyndi og allt mögulegt í rauninni sem getur verið að í andlegri eða líkamlegri heilsu,“ sagði Heiða Björk að lokum.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search