Verkefni færð til Vestmannaeyja

Kristín Þórðardóttir settur sýslumaður í Vestmannaeyjum, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra,
Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra og Sigríður K. Þorgrímisdóttir frá Byggðastofnun.

Dómsmálaráðherra og Samgöngu- og sveitastjórnaráðherra undirrituðu í dag samkomulag um að færa verkefni við rafræna útgáfu á reglugerðarsafni frá höfðuðborgarsvæðinu til embættis Sýslumannsins í Vestmannaeyjum. Verkefnið miðar að því að tryggja að rafræn útgáfa af reglugerðarsafni, sem birtar eru í B deild Stjórnartíðinda, verði uppfært jafnóðum á vefsvæðinu reglugerd.is.

Um er að ræða átaksverkefni til fimm ára til að byrja með en unnið er að heildstæðri greiningu á nýjum verkefnum fyrir sýslumannsembættin. Í þessu verkefni er miðað við að eitt stöðugildi sérfræðings sinni verkefninu og það fjármagnað að hluta með stuðningi úr byggðaáætlun við fjarvinnslustöðvar. Stefnt er að því að verkefnið hefjist á fyrri hluta þessa árs.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is