29.07.2020
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum óskaði eftir umsögn Vestmannaeyjabæjar um umsókn Svövu Kristínar Grétarsdóttur um leyfi til að halda styrktartónleika á bílastæði bakvið húsið við Strandveg 50, þann 1. ágúst nk., frá kl. 23:00 til kl. 03:30 þann 2. ágúst nk. Bæjarráð veitir umsókninni jákvæða umsögn að því gefnu að farið sé að skilyrðum sýslumanns og með fyrirvara um jákvæða umsögn hlutaðeigandi eftirlitsaðila.
Tígull heyrði í Svövu Kristínu og sagði hún að ef ekki kæmi til hertar samkomu takmarkana þá fara tónleikarnir fram. Það kemur í ljós í dag hvort almannavarnir ætli að minnka þetta niður í 100 manns. Þá gengur þetta náttúrlega ekki, annars verður ballið.
En allur ágóði af tónleikunum rennur til barna og unglingastarfs ÍBV.
Svava Kristín hefur verið í viðræðum við nokkra listamenn en getur ekki gefið upp að svo stöddu hverjir koma en lofaði góðri skemmtun.