Föstudagur 13. nóvember 2026

Vellíðan – grundvöllur að námi 

Allir foreldrar þekkja það að hamingja barna þeirra er gríðarlega stór þáttur í þeirra lífi. Það er ekki að tilefnislausu að orðatiltækið; þú ert jafn hamingjusamur og þitt óhamingjusamasta barn, sé gjarnan hent út í samtalið um börn og hamingju. Skólasamfélagið þekkir þetta líka, starfsfólk skólanna gerir hvað þau geta til að öllum líði sem allra best. 

Í grunnskólanum í Vestmannaeyjum er þróunarverkefni í gangi, Kveikjum neistann. Kveikjum neistann er þróunarverkefni og menntarannsókn sem Grunnskóli Vestmannaeyja fór af stað með haustið 2021. Verkefnið sem er 10 ára þróunar- og rannsóknarverkefni með heildstæða nálgun á skólastarfið, er stutt af Vestmannaeyjabæ, menntamálaráðuneyti, Háskóla Íslands og Samtökum atvinnulífsins. 

Verkefnið notar vísindin til að leiðbeina sér hvernig sé best að haga skóladeginum og uppsetningu kennslunnar. Allt gert svo að nám barnanna verði sem best og skilvirkast. Það samtvinnast óhjákvæmilega við líðan barnsins. Skoðum þá 6 lykla sem verkefnið byggir á. 

Lykill 1 byggir á að nota bókstaf-hljóða aðferð við lestrarkennslu í upphafi skólagöngunnar. Hér skiptir mestu máli að börnin nái að brjóta lestrarkóðann og í kjölfarið að lesskilningur barna vaxi jafnt og þétt og hugað sé að honum alla skólagönguna. Það er því mjög mikilvægt að allir nemendur fái áskoranir miðað við færni. Það óhjákvæmilega skapar vellíðan hjá nemendum að þurfa ekki að glíma við verkefni sem það ræður ekki við. Hvað þá að að eltast við línu á skjali sem það ekki endilega hefur forsendur til að ná. Börn verða að fá réttar áskoranir miðað við færni til að komast í flæði en þannig ná þeir frábærum árangri, kenningar frá Csikszentmihalyi. 

Lykill 2 Grunnþættir í stærðfræði eru festar í sessi áður en kemur að öðrum þáttum. Við þekkjum það flest að sterkur grunnur er forsenda þess að efla færni og byggja ofan á færni sem er til staðar. Nemendum líður illa ef þau eru beðin um að læra nýtt efni án þess að hafa nægilega sterkan grunn eða forsendur til þess. Hér er notast við kenningar Edelmans um að endurtekningin skapar meistarann. 

Lykill 3 Hugarfarið, ástríðan og þrautseigjan. Við vitum öll hve mikilvægt hugarfarið er. Við sjáum það svo auðveldlega á landsliðunum okkar sem náð hafa sem bestum árangri. Það verður allt léttara með réttu hugarfari. Ástríðan

gerir okkur kleift að leysa hin ótrúlegustu verkefni. Hugarfar grósku, ástríðu og þrautseigju einkennir starfsemi skólans. Þeim viðfangsefnum er flaggað sem kveikja áhuga hjá hverjum nemenda, kenningar frá Sigmundssyni, Dweck og Duckworth. 

Lykill 4 Hreyfingin er okkur svo mikilvæg, en við erum núna að sjá í auknu mæli mikilvægi hreyfingar við nám og að efla færni. Meiri hreyfing á réttum tíma getur haft mikið að segja um vellíðan barna, hvað þá námið þeirra. Hreyfing snemma dags hefur góð áhrif á taugastarfsemi heilans (dópamín, gráa og hvíta efnið) sem hjálpar við nám barna. 

Lykill 5 Þjálfunartími er þegar árganginum er skipt upp í hópa og passað að allir fái verkefni við hæfi. Verkefnin á þessum tímum eru öll til að efla færni í grunnfögum. Verkefni við hæfi hefur alltaf góð áhrif á líðan nemenda. Hérna eru nemendur einnig að blandast þvert á bekki og þar með að brjóta bekkjarmúra. Markviss þjálfun hvers nemanda og eftirfylgni er lykill að færni og þróun þekkingar. Jákvæð styrking er þar í lykilhlutverki, kenning frá Ericsson. 

Lykill 6 Ástríðutíminn, þegar nemendur fá eitthvað um það að segja hvað þau læra. Nemendur geta stýrt því að einhverju leyti hvað þau læra er varðar verkgreinar eða önnur fög. Allt sem viðkemur ástríðu snertir líka ómeðvitað líðan nemenda. Þeim líður einfaldlega betur við að læra það sem þau hafa áhuga á og þeim líður betur að hafa stýringu á því sem þau eru að læra. 

Eins og sjá má eru þessir lyklar, og þær helstu kenningar sem verkefnið byggir á, einnig að huga að vellíðan nemenda. Það virðist nefnilega vera þannig að þeim nemendum sem líður illa gengur verr í skólum og öfugt. 

Í grunninn eru kenningarnar, sem notaðar eru í verkefninu Kveikjum neistann, frábærar til að skapa skólaumhverfi. Samspil þeirra er eins og uppskrift að nýju, öðruvísi og mögulega betra námsumhverfi. Þó að verkefnið sé í raun að huga að betri árangri nemenda í námi er það einnig óhjákvæmilega að huga að líðan þeirra. Það virðist nefnilega oftast haldast í hendur vellíðan nemenda við árangur í námi. 

Óskar Jósúason 

aðstoðarskólastjóri Hamarsskóla

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search