17.09.2020
Það var líf og fjör hjá krökkunum í 8.bekk í vikunni. Þau fóru í árlegt bekkjarferðalag á Úlfljótsvatn.
Þau eru þar í þrjá daga og eru læra allskonar öðruvísi hluti til að mynda bogfimi eins og sést á mynd hér neðar. Alls fóru 49 nemendur og 3 kennarar með þeim þær Hanna, Lóa og Hildur. Hópurinn fékk mikið hrós fyrir flotta og prúða framkomu svo við getum öll verið stolt af flottu krökkunum okkar.