Föstudagur 13. nóvember 2026

Vel heppnaður kynningarfundur

Framkvæmdaraðilar fiskeldis í Viðlagafjöru, í samstarfi við Vestmannaeyjabæ, héldu kynningarfund í Akóges í gær. Lárus Sigurður Ásgeirsson stjórnarformaður og einn af stofnendum Icelandic land farmed salmon kynnti verkefnið í gær, kynninguna má finna hér, Árni Geirsson frá Alta fór yfir Aðalskipulag Vestmannaeyja. Í Aðalskipulaginu er lagður grundvöllur fyrir deiliskipulagsgerð einstakra svæða í Vestmannaeyjum. Hægt er að kynna sér umhverfismatsskýrsluna vegna aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulags nýs iðnaðarsvæðis í Viðlagafjöru frá Alta hér  og tillögu um breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja hér. Aron Geir Eggertsson, Umhverfis- og auðlinafræðingur kynnti niðurstöður umhverfismats Eflu.

Aðilar sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér gögnin. Umsagnafresturinn fyrir umhverfismat framkvæmdaaðila (ILFS) er 4. október. Umsagnafresturinn fyrir skipulagsbreytingarnar og umhverfismatsskýrslu skipulagsáætlana er 1. nóvember. Athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 1. nóvember 2022 í afgreiðslu Umhverfis- og framkvæmdasviðs að Skildingavegi 5 eða á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is.

 

Hrafn Sævaldsson stýrði fundinum.

Dagný Hauksdóttir.

Árni Geirsson frá Alta.

Aron Geir Eggertsson frá Eflu.

Lárus Sigurður Ásgeirsson.

Hallgrímur Steinsson stjórnarmaður og stofnandi ILFS, Lárus Sigurður Ásgeirsson stjórnarformaður og stofnandi ILFS, Aron Geir Eggertsson frá Eflu, Árni Geirrson frá Alta og Dagný Hauksdóttir skipulags- og umhverfissfulltrúi Vestmannaeyjar sátu fyrir svörum í lok fundsins.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search