Fimmtudagur 8. október 2026

Vel heppnað Vestmannaeyjahlaup í dag – myndaveisla

Það var blíðskaparveður þegar Vestmannaeyjahlaupið fór fram í sextánda sinn. 116 hlauparar tóku þátt með góðum árangri.
Stefán Kári Smárason sigraði 10 km í karlaflokki á tímanum 36:50. Elís Rafn Björnsson var annar á 36:54 og Sindri Georgsson þriðji á 37:24.
Fríða Rún Þórðardóttir var fyrst kvenna í 10 km á 41:49. Sandra Dís Pálsdóttir kom önnur í mark á 45:45 og Fríða Kristín Jónsdóttir þriðja á 55:14.
Hinn þrettán ára gamli Nökkvi Dan Sindrason sigraði 5 km karla á tímanum 20:08. Í öðru sæti varð Daði Guðmundsson á 20:59 og í þriðja Helgi Heiðar Stefánsson á 21:17.
Í kvennaflokki sigraði Erla Rós Sigmarsdóttir á 22:06. Önnur varð Guðrún Bára Magnúsdóttir á 22:42 og þriðja Katrín Hulda Tómasdóttir á 23:38.
Ljósmyndari Tíguls, Kata Laufey myndaði hlaupið, hér er brot af þeim myndum. Fleiri myndir er svo að finna inn á facebooksíðu hlaupsins: Vestmannaeyjahlaupið.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search