Rauði Krossinn í Vestmannaeyjum hefur staðið fyrir námskeiði fyrir 12 ára börn sem heitir börn og umhverfið undanfarin ár.
Á námskeiðinu er farið yfir ýmsa þætti sem varðar umgengni og framkomu við börn. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru Guðrún María Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur og Lóa Baldvinsdóttir Leikskólakennari.
Rætt var um árangursrík samskipti, leiðtogahæfni, agastjórnun, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Lögð var áheyrsla á umfjöllun um slysavarnir og algengar slysavarnir í umhverfinu ásamt ýtarlegri kennslu í skyndihjálp.
,,Alls voru ellefu þátttakendur í ár, þau voru mjög svo áhugasöm og ánægð að hafa komið á námskeiðið sagði Guðrún María í samtalið við Tígul.



