Hollvinasamtök Hraunbúða gáfu á dögunum tvær spjaldtölvur, hulstur og tvenn þráðlaus heyrnartól til dagdvalarinnar
Þetta mun nýtast mjög vel bæði fyrir sértæku dagdvalarrýmin og almennu rýmin.
Á myndinni má sjá Ragnheiði Geirsdóttur með tækin sem þau fengu að gjöf.
Hollvinasamtökin voru stofnuð árið 2017 og tilgangur félagsins er að bæta aðstöðu og upplifun heimilisfólks og aðstoða við úrbætur á vistarverum þess.

