13.10.2020
Þegar blaðamaður Tíguls rölti milli Miðstöðvar og Krónunnar rétt í þessu lá við að fljúga á hausinn, þegar út úr Krónunni var komið var Slökkviliðstjórinn mættur að úða sápu á planið fyrir framan Klettinn.
Tilkynning frá Slökkviliðinu:
Óhapp varð núna fyrir stundu þegar glussaslanga í gröfu sprakk þegar vélin var stödd á Strandvegi til móts við Krónuna.
Greiðlega hefur gengið að hreinsa upp þá yfirborðsolíu sem var á götunni með aðstoð sóparabílsins en töluvert hafði borist áfram með umferð m.a. niður á Tangagötu.
Svæðið afmarkast að mestu leyti við Strandveg frá Miðstöðinni og að gatnamótum Strandvegs og Heiðarvegs, auk Tangagötu frá Skildingavegi að Skólavegi. þetta svæði verið varasamt í einhvern tíma, og þá sérstaklega gangbrautir, ekki síst fyrir reið- og bifhjólafólk sem á leið þar yfir.
Farið því varlega á þessu svæði á næstunni.