Varðandi hraðpróf vegna Covid-19

Einkannasýnataka (PCR)  klukkan 13:00, Hraðpróf á bilinu 13:15-15:00

Í dag, föstudaginn 17/12 er búist við metfjölda í hraðpróf á Heilsugæslunni í Vestmannaeyjum, eða yfir 200 manns. Því er hætt við að það myndist langar biðraðir.

Samkvæmt skilaboðum sem fylgja strikamerki eiga allir að mæta klukkan 13:00, en við biðjum þá sem þurfa að koma í einkennasýnatökur (PCR) að koma stundvíslega klukkan 13, en þá sem koma í hraðpróf að koma milli klukkan  13:15-15:00 og koma frekar aftur ef röðin er mjög löng.  Unnið er að því að breyta upplýsingum í tölvukerfum þannig að einkennasýnatökur og hraðpróf séu ekki skráð á sama tíma.

Minnum alla á að hafa strikamerkin tilbúin.

Davíð Egilsson segir að staðan á Covid í Eyjum sé nokkuð góð með 10 eða færri einstaklinga í einangrun undanfarnar vikur. Fylgjast má með stöðu faraldursins á Suðurlandi inn á heimasíðu HSU.

Með jólakveðju,

Heilsugæslan í Vestmannaeyjum.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is