Fimmtudagur 21. september 2023

Valkvæðar aðgerðir heimilaðar á ný

10.11.2020

Heilbrigðisráðherra hefur staðfest fyrirmæli landlæknis um að fella úr gildi auglýsingu um frestun valkvæðra skurðaðgerða og annarra ífarandi aðgerða. Ákvörðunin tekur gildi á morgun. Auglýsing heilbrigðisráðherra þessa efnis ásamt fyrirmælum landlæknis hefur verið send til birtingar í Stjórnartíðindum.

Auglýsing ráðherra um frestun valkvæðra skurðaðgerða tók gildi 26. október síðastliðinn í kjölfar þess að Landspítali var færður á neyðarstig í kjölfar hópsmits á Landakoti.

Í meðfylgjandi fyrirmælum landlæknis segir að staðan á Landspítala sé enn alvarleg en að heldur hafi hægst um. Forstjóri Landspítala og formaður farsóttanefndar spítalans telji nú óhætt að hefja valaðgerðir á ný en með vissum takmörkunum er varðar stærri aðgerðir.

Landlæknir hvetur lækna til að hefja að nýju valkvæðar aðgerðir samkvæmt getu hverrar stofnunar en biðlar til sjálfstætt starfandi lækna að bíða heldur lengur með stærri aðgerðir og verður í sambandi við hlutaðeigandi vegna þess.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is