Föstudagur 13. nóvember 2026
Vestmannaeyjar Jón Magnússon

Útsvarsprósenta einstaklinga óbreytt milli ára

Á fundi sínum þann 9. september sl., samþykkti bæjarráð ákveðnar forsendur við undirbúning og vinnslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023. Meðal annars að gengið yrði út frá því að útsvarsprósenta yrði áfram sú sama, þ.e. 14,46%, framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga verði í samræmi við áætlun sjóðsins, sem ætti að liggja fyrir áður en áætlunargerðinni lýkur, að aðrar tekjur málaflokka, svo sem vegna gjaldskráa bæjarins, hækki í samræmi við vísitölu neysluverðs, stuðst verði við sérstaka launaáætlun við útreikning launa á næsta ári og að aðrir rekstrarliðir en laun, hækki almennt um 4%.

Jafnframt kom fram á fundinum að starfsfólk Vestmannaeyjabær hafi verið að skoða áhrif lækkunar á álagningaprósentum á tekjur bæjarsjóðs af fasteignagjöldum, en bæjarráð þurfi að ákvarða álagningarprósentu fasteignagjalda fyrir árið 2023 á þessum fundi.

Á fundi bæjarráðs nú í hádeginu samþykkti ráðið að hlutfall útsvars af tekjum einstaklinga verði óbreytt milli ára, alls 14,46%.

„Þá leggur bæjarráð til að hlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækki á milli ára úr 0,281% og verði 0,268% á íbúðarhúsnæði (A flokki), hlutfallið verði óbreytt á opinberar stofnanir (B flokki) þ.e. 1,32% og að hlutfallið lækki úr 1,45% í 1,40% á annað húsnæði (C flokki), þ.m.t. atvinnuhúsnæði. Með þessu móti sé dregið úr áhrifum þess að hækkun fasteignamats auki álögur á íbúa og fyrirtæki í Vestmannaeyjum.

Mikilvægt er að kjörnir fulltrúar séu vakandi yfir þeim áhrifum sem hækkandi fasteignamat hefur í för með sér og í því ljósi hefur álagningarhlutfallið undanfarin ár verið lækkuð til hagsbóta fyrir íbúa og fyrirtæki í Vestmannaeyjum.“

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search