Júnía Eysteinsdóttir er 15 ára eyjamær sem var að ljúka GRV ári á undan jafnöldrum sínum. Júnía er dóttir Eysteins Gunnarssonar og Írisar Róbertsdóttur
Hvernig var það að fara upp um heilan bekk?
Það var alveg smá erfitt. En besta vinkonan mín var í 10. bekk þannig það gerði þetta aðeins auðveldara.
Hvað er uppáhald námsgreinin þín?
Enska og samfélagsfræði.
Hver er eftirminnilegasta minning þín í GRV?
Fyrsti dagurinn í 10. bekk, var að deyja úr stressi og talaði ekki neitt.
Ertu með einhverja rútínu á því hvernig þú lærir heima eða undir próf?
Ég hlusta mikið á klassíska tónlist þegar ég er að læra. Svo fer ég bara yfir bækurnar og glósurnar mínar og fer alltaf snemma að sofa áður en ég fer í próf.
Ertu búin að ákveða hvað þú vilt læra í framhaldinu ?
Já. Ég ætla að læra sálfræði.
Í hvaða skóla ætlarðu í haust og þá á hvaða braut?
Ég ætla á félagsfræðibraut og stefni á að fara í Kvennó.
Hvert er draumastarfið þitt í framtíðinni?
Mig langar mjög mikið að verða barnasálfræðingur.
Hvað er uppáhalds:
Maturinn þinn? Uppáhalds maturinn er kjötsúpan hennar ömmu.
Tónlist? Uppáhalds tónlistin er Queen, Elton John og Pink Floyd.
þættir? Þættir er Brooklyn 99 og Criminal Minds.
Hvar ætlarðu að vinna í sumar?
Er að fara að vinna á Sóla.
Ætlarðu að vera á Þjóðhátíð?
Já!! Er svo spennt.

